Drift EA, sex fyrirtæki og Háskólinn á Akureyri fagna samstarfi um nýsköpun á Norðurlandi

Mynd Aðsend.
Mynd Aðsend.

Samningar hafa verið gerðir við Háskólann á Akureyri og sex öflug fyrirtæki sem hafa mikla þekkingu og reynslu á sínu sviði. Þessir sjö aðilar sem nú kallast “Driftarar” verða hluti af kjarnateymi DriftarEA, en Driftarar mynda tengingar milli frumkvöðla, fyrirtækja og fræðanets.

Markmið Driftara er að aðstoða og hjálpa frumkvöðlum að þróast og vaxa með því að móta og innleiða áætlanir í takt við þau verkefni sem tekist er á við hverju sinni að hverju verkefni. Þjónustan sem frumkvöðla vantar getur verið margþætt og markmið DriftarEA er að mæta þörfum þeirra sem best með því að bjóða fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að veita:á þá nefna eftirfarandi atriði:

  • Ráðgjöf um fjármögnun og áætlanir
  • Aðstöðu og samfélag
  • Aðstoð við styrkumsóknir
  • Aðgengi að rannsóknar og þróunar verkefnum
  • Þjálfun í kynningu og framkomu
  • Undirbúning fyrir fjárfestafundi
  • Aðgengi að viðtæku tengslaneti DriftarEA á landsvísu og utan landsteina
  • Persónulegar tengingar við fjárfesta og aðra hagaðila
  • Sérsniðna sérfræðiaðstoð

,,Það hefur verið virkilega skemmtilegt að vinna síðustu mánuði með Háskólanum á Akureyri ásamt þeim fyrirtækjum sem taka þátt í þessu verðuga verkefni með okkur. Allir sjö aðilarnir hafa verið sérlega áhugasamir um að gerast Driftarar og hafa sýnt það í verki að það er mikill vilji til að vinna saman þó að fyrirtækin séu með einum eða öðrum hætti í beinni samkeppni.

Fyritækin munu verða með starfsaðstöðu hjá DriftEA til að þjónusta frumkvöðla, nýsköpunarfyrirtæki eða verkefni sem verða valin í DriftEA,ásamt því að taka virkan þátt í að þróa verkefni með okkur, vera mentorar, halda fyrirlestra og annað sem tengist því að byggja upp þekkingu á svæðinu og efla nýsköpunarsamfélagið.

“Driftara teymið mun með þessum hætti búa yfir öflugri og fjölbreyttri þekkingu á sviði nýsköpunar, tengslamyndunar,fræðanetsins,verkfræði, lögfræði, fjármála,áætlanagerðar, viðburðastjórnunar, grafískrar hönnunar, auglýsinga og markaðsfræða.“  

Segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir framkvæmdarstýra DriftarEA


Athugasemdir

Nýjast