Vel mætt í Fálkafellsgönguna

Göngugarparnir við Fálkafell.  Myndir aðsendar
Göngugarparnir við Fálkafell. Myndir aðsendar

Í dag fórum um 30 manns í ljósastyrktargöngu upp í Fálkafell til styrktar Velferðasjóðs Eyjafjarðasvæðisins. Hópurinn fékk hið besta veður, logn, frost og frábært gönguveður

Fólk kom saman við bílastæðið og gekk þaðan upp í Fálkafell.   Þegar þangað upp var komið var  skrifað  í gestabók og göngugarparnir gáfu sér góðan tíma uppi og áttu góða  stund þar, bæði við spjall og myndatöku.
 
Herdís Helgadóttir, formaður Velferðarsjóðsins sagði okkur frá hlutverki sjóðsins hverjir koma að honum og má lesa nánar um hann hér https://www.velferdey.is/is/fyrirtaekid/um-okkur.
 
Heiðrún Jóhannsdóttir las upp skilaboð frá sjóðnum þar sem göngufólki og öðrum sem ekki komumst í gönguna voru sendar þakklætis- og velfarnaðarkveðjur.
 
Að því loknu hélt göngufólki á leið niður í halarófu og var einstakt að sjá ljósin liðast áfram í myrkrinu. 
 
Enn er hægt að leggja inn á Velferðasjóðinn og má finna styrktarnúmerið hér

Kt. 651121-0780
Rn. 0302-26-003533
 

Nýjast