Vel heppnað filippseyskt matar- og skemmtikvöld hjá starfsmannafélagi Útgerðarfélags Akureyringa

Hátt í þrjátíu starfsmenn ÚA rekja ættir sínar til Filippseyja / myndir samherji.is
Hátt í þrjátíu starfsmenn ÚA rekja ættir sínar til Filippseyja / myndir samherji.is

Starfsfólk Útgerðarfélags Akureyringa og gestir skemmtu sér konunglega sl. laugardagskvöld í matsal félagsins. Starfsmannafélag Útgerðarfélags Akureyringa ( STÚA) efndi til filippseysks matar- og skemmtikvölds en hjá ÚA starfa nærri ‏þrjátíu manns sem rekja uppruna sinn til Filippseyja.

Bethsaida Rún Arnarson hefur starfað hjá ÚA í um þrjátíu ár og er trúnaðarmaður starfsfólks sem er í Einingu-Iðju, auk þess sem hún er í stjórn stéttarfélagsins. Bethsaida segir að undirbúningur matar- og skemmtikvöldsins hafi gengið sérlega vel.

Bethsaida Rún Arnarson

Mikill undirbúningur

„Við hjálpuðumst öll að og skiptum með okkur verkum. Undirbúningurinn hefur staðið yfir í nokkrar vikur, svo sem að æfa þjóðdansa, skipuleggja matarhlaðborðið og fleira. Við hófumst handa við að skreyta salinn eftir vinnu á föstudaginn og markmiðið var að gera hann sem glæsilegastan, þannig að gestirnir hefðu það á tilfinningunni að vera komnir til Filippseyja. Snemma á laugardagsmorgninum var svo byrjað á eldamennskunni og öðrum undirbúningi fyrir veisluna. Þetta tókst allt saman vel og allt var orðið klárt þegar fyrstu gestirnir komu.“

Gestrisni annáluð

Filippseyjar eru annálaðar fyrir ríka matarmenningu, með áhrifum frá öllum heimshornum. Hvert hérað er með sinn stíl í matargerð og gestrisni íbúanna er annáluð. Hrísgrjón eru algeng í matargerð sem grunnur, mikið er um fisk, kjöt og baunir að ótöldum miklu úrvali af alls kyns kryddtegundum.  Íbúar Filippseyja eru rúmlega 90 milljónir og eyjarnar eru samtals 7.100 en 880 þeirra eru í byggð.

Þjóðlegur matur og dans

„Við buðum gesti velkomna í anddyri matsalarins klædd þjóðbúningum, sem eru mismunandi eftir sýslum. Við höfðum líka æft þjóðdansa frá nokkrum héruðum, sem var mjög skemmtilegt að sýna. Við vorum með samtals tíu mismunandi rétti á hlaðborðinu og fimm eftirrétti. Við erum öll alsæl með viðtökurnar, margir gestir þökkuðu okkur fyrir góðan mat og skemmtiatriði. Aðstaðan í eldhúsi ÚA er frábær, þannig að allur undirbúningur gekk vel og kvöldið var stanslaus gleði.“

Hvað vita Íslendingar helst um Filippseyjar ?

„ Í sannleika sagt vita þeir almennt ekki mikið en ég er viss um að einhverjir fara að kynna sér Filippseyjar eftir þetta matar- og skemmtikvöld. Við sýndum líka myndbönd, þar sem nokkrir vinsælir ferðamannastaðir voru kynntir og ég vil bara hvetja sem flesta Íslendinga til að kynna sér Filippseyjar.“

Virkilega ánægjuleg kvöldstund

Óskar Ægir Benediktsson formaður STÚA segir að matar- og skemmtikvöldið hafi tekist vonum framar.

„Þetta var virkilega ánægjuleg kvöldstund. Ég átti þess kost að fylgjast með undirbúningnum og hve samheldnin og gestrisnin var einstök. Svona þjóðarkvöld þjappa starfsfólkinu enn betur saman, sem er mikils virði. Ég held að allir gestir kvöldsins hafi fundið vel fyrir hinni annáluðu gestrisni sem ríkir á Filippseyjum.“

Fleiri myndir frá matar- og skemmtikvöldinu má sjá hér fyrir neðan.

Gestum var vel fagnað.

 

Allir skemmtu sér konunglega

 

Á góðum skemmtikvöldum er nauðsynlegt að taka myndir 

 

Matsalur ÚA var þétt setinn

 

Kjötið skorið á diskana

Það er heimasíða Samherja sem fyrst segir frá þessu

Nýjast