Út á land með strætó, flugi og ferju
Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi um almenningssamgöngur á landsbyggðinni á morgun fimmtudag.
Í tilkynningu femur fram að á undanförnum árum hafi ferðamátar breyst töluvert, t.d. fjölgi þeim sem hjóla til og frá vinnu, auk þess sem aukinn áhugi og umræða er um bættar almenningssamgöngur.
"Almenningssamgöngur á landsbyggðinni eru á borði Vegagerðarinnar hvort heldur sem er með strætó, flugi eða ferjum, en þessir ferðamátar hafa ef til vill ekki fengið jafn mikla umræðu og margt annað. Á morgunverðarfundinum verður sjónum fólks beint að þessum málaflokki," segir í tilkynningunni.
Fundurinn fer fram í húsnæði Vegagerðarinnar að Suðurhrauni 3 í Garðabæ frá klukkan 9.00 til 10.15.
Hægt verður að fylgjast með streymi frá fundinum hér fyrir neðan.