27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Upplýsingar lagðar fram um mat á umhverfisáhrifum vegna Blöndulínu 3
Opið hús verður í dag kl. 19.30-21.30 á Hótel KEA þar sem verða lagðar fram upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum vegna Blöndulínu 3 sem mun liggja á milli Blöndustöðvar og Akureyrar.
Línuleiðin er innan fimm sveitarfélaga, Akureyrarbæjar, Hörgársveitar, Akrahrepps, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Húnavatnshrepps.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta orkunýtingu, auka flutningsgetu og tryggja stöðugleika raforkukerfisins á Norður- og Austurlandi. Framkvæmdin hefur einnig þýðingu fyrir flutningskerfi landsins í heild þar sem um er að ræða mikilvægan hlekk í styrkingu tengsla milli sterkari hluta kerfisins á suðvesturhorninu og veikari hluta þess á Austurlandi.
Umhverfismatsskýrsla vegna Blöndulínu 3 er aðgengileg á vefsíðum Skipulagsstofnunar, Landsnets og Mannvits frá 25. mars til 13. maí 2022. Að auki liggur umhverfismatsskýrslan frammi til kynningar frá 29. mars á eftirtöldum stöðum: Í ráðhúsi Akureyrarbæjar, á skrifstofum Hörgársveitar, Akrahrepps, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Húnavatnshrepps og hjá Skipulagsstofnun.