20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Umgengni á athafnasvæði Skútabergs á Moldhaugnahálsi
Umgengni á athafnasvæði Skútabergs á Moldhaugnahálsi hefur verið til umræðu hjá Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra um skeið, en nefndin lýsti fyrir nokkru yfir vonbrigðum með að áform um tiltekt á svæðinu hefðu ekki gengið eftir.
Nefndin óskað eftir skriflegri umbótaáætlun fyrir fyrirtækinu þar sem fram kæmi hvenær og hvernig yrði orðið við kröfum hennar. Í aðgerðaráætlun Skútabergs kemur fram að tiltekt ætti að fara fram á ákveðnum tíma þar sem fjarlæga átti gáma og rusl. Þá kom fram að unnið sé að undirbúningi sjónmanar í samráði við Vegagerðina og þá hefur fyrirtækið sent inn umsókn vegna geymslusvæðis sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi.
Hlutum sem hafa ekki varðveislugildi verði fargað
Heilbrigðisnefnd hefur samþykkt úrbótaáætlun Skútabergs og munum starfsmenn heilbrigðiseftirlits fylgjast með framvindu mála. Að mati nefndarinnar þurfa framkvæmdir við varanlegt og vandað geymslusvæði að hefjast sem fyrst. Þá ítrekar nefndin þá skoðun sína að þeim hlutum sem ekki hafa varðveislugildi skuli komið í viðeigandi förgun án frekari tafa, enda eiga slíkir hlutir ekkert erindi inn á geymslusvæði.