Tveir Íslandsmeistarar í VMA

Nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri stóðu sig frábærlega á Íslandsmóti í iðn- og verkgreinum sem haldið var í Laugardagshöll um liðna helgi. Alls tóku átta nemendur þátt í Íslandsmótinu. Tveir Íslandsmeistaratitlar voru í húsi eftir mótið, annars vegar í rafvirkjun og hins vegar í rafeindavirkjun.
Sigursteinn Arngrímsson keppti í húsasmíði, Jón Steinar Árnason og Steindór Óli Tobiasson í málmsuðu, og þá tóku þrír nemendur í rafeindavirkjun þátt, þeir Hreiðar Logi Ásgeirsson, Jóhann Ernir Franklín og Sindri Skúlason. Tveir rafvirkjanemar tóku þátt, þau Óliver Pálmi Ingvarsson og Droplaug Dagbjartsdóttir.
Óliver Pálmi sigraði í samanlögðu í rafvirkjuninni og varð Íslandsmeistari. Droplaug stóð sig einnig frábærlega og fékk viðurkenningu fyrir bestan árangur í forritunarhluta keppninnar.
Sindri Skúlason varð Íslandsmeistari í rafeindavirkjun og Jóhann Ernir Franklín varð í öðru sæti.
Sigursteinn Arngrímsson gerði einnig gott mót í húsasmíðinni og var hársbreidd frá því að ná bronssætinu. Jón Steinar Árnason varð í þriðja sæti í gríðarlega jafnri og harðri málmsuðukeppni og Steindór Óli Tobiasson varð í fjórða sætinu. Þetta kemur fram á vefsíðu VMA.