Þorgerðartónleikar á morgun miðvikudag
Þorgerðartónleikar Tónlistarskólans á Akureyri verða í Hömrum, Hofi miðvikudaginn 19. mars næstkomandi kl 20:00.
Á tónleikunum koma fram nemendur á framhaldsstigi og er óhætt að lofa fjölbreyttum og skemmtilegum tónleikum. Aðgangur er ókeypis en tekið við frjálsum framlögum í Þorgerðarsjóð.
Þorgerður Eiríksdóttir lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms.
Eru tónleikar helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.