Tryggvi Þór sækist líklega eftir endurkjöri

Tryggvi Þór Herbertsson.
Tryggvi Þór Herbertsson.

„Kjördæmisráð tekur ákvörðun um hvernig raðað verður á framboðslistann og ég reikna með að ráðið taki ákvörðun um tilhögun í október. Eins og staðan er núna eru meiri líkur en minni á að ég sækist eftir endurkjöri,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi. Hann hefur setið á Alþingi í eitt kjörtímabil. Tryggvi segir að mörg mál bíði úrlausnar á næstu fjórum árum.

„Ég nefni í fyrsta lagi efnahagsmálin. Hvað varðar mitt kjördæmi, þá er brýnt að ráðast í vegaframkvæmdir, sem setið hafa á hakanum allt og lengi. Atvinnumálin verða áfram ofarlega á baugi og stjórnun fiskveiða. Allt eru þetta stór mál. Ég vil mjög gjarnan leggja mitt að mörkum, en eins og ég segi er ekki hægt að tilkynna um framboð fyrr en línur skýrast.” Sjálfstæðisflokkurinn er með tvo þingmenn í NA kjördæmi. Þeir eru Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast