Norlandair heldur ekki áfram áætlunarflugi til Húsavíkur
![Byggðarráð skorar á ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála að tryggja samninga um áætlunarflug ti…](/static/news/lg/husavikurflugv.jpg)
Norlandair hyggst ekki halda áfram áætlunarflugi til Húsavíkur eftir að samningstíma milli félagsins og ríkisins um flug til Húsavíkur lýkur þann 15. mars næstkomandi.
Guðbjartur Ellert Jónsson fjármálastjóri Norlandair mætti á fund byggðaráðs í morgun og fór yfir stöðun og horfur varðandi framhald á flugi í Húsavíkur en félagið hyggst ekki halda því áfram eftir að núverandi samningur rennur út um miðjan mars.
Byggðarráð Norðurþings telur að samningurinn hafi verið til of skamms tíma, nýting flugsins hafi verið góð og lítið vanti upp á til að tryggja flug til Húsavíkur allt árið um kring.
Byggðarráð skorar á ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála að tryggja samninga um áætlunarflug til Húsavíkur allt árið.