Dagskráin 12. febrúar - 19. febrúar Tbl 6
Arctic Therapeutics fær 4 milljarða fjármögnun
![Á myndinni má sjá Áslaugu Ásgeirsdóttur, rektor HA, Ívar Hákonarson, forstjóra, Olgu Ýr Björgvinsdót…](/static/news/lg/13.2.2025_fjarmognun-at.png)
Frá stofnun hefur íslenska erfða- og líftæknifyrirtækið Arctic Therapeutics verið í góðu samstarfi við Háskólann á Akureyri (HA) og er starfseining fyrirtækisins á Akureyri staðsett á háskólasvæðinu. Samstarfið felst meðal annars í því að ATx hefur aðgang að rannsóknaraðstöðu skólans og sú nálægð hefur leitt til fjölmargra rannsókna og verkefna. Stúdentar HA hafa átt þess kost að vinna með ATx í rannsóknarverkefnum og í kjölfarið fengið störf hjá fyrirtækinu. Þá hafa HA og ATx einnig sameinast um að kynna rannsóknir sínar á Vísindavöku, sem hefur gengið gríðarlega vel. Samstarfsyfirlýsing liggur fyrir milli HA og ATx til ársins 2026, sem undirstrikar mikilvægi samstarfsins og framtíðaráforma fyrirtækisins á Akureyri.
„Þetta samstarf hefur reynst okkur afar dýrmætt. Að hafa á svæðinu jafnöflugt fyrirtæki og ATx er orðið í dag er eitt og sér jákvætt. Sú staðreynd, að með nálægðinni hefur myndast færi á samvinnu við stúdenta í skólanum í rannsóknarverkefnum, er nær ómetanleg. Þá er einkar ánægjulegt að heyra að stúdentar frá HA hafi farið í störf hjá fyrirtækinu og sýnir það mikilvægi okkar námsleiðar í líftækni sem er einstök á landinu,” segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor skólans Háskólans á Akureyri.
Á dögunum tryggði ATx sér 4 milljarða króna fjármögnun frá breiðum hópi innlendra og erlendra fjárfesta. Fjármagnið mun styðja áframhaldandi þróun lyfja félagsins, sérstaklega í baráttunni gegn heilabilun og húðbólgusjúkdómum. Þetta er stór áfangi fyrir ATx og styrkir stöðu þess á alþjóðlegum vettvangi.
Við óskum ATx til hamingju með árangurinn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
Þá er vert að benda á að fimmtudaginn, 27. febrúar næstkomandi, munu fulltrúar ATx mæta á Nýsköpunarkaffi og segja frá ferlinu. Frekari upplýsingar um viðburðinn má nálgast hér.