27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Tónleikar Upptaktsins í Hofi á sunnudaginn
Tónleikar Upptaktsins fara fram í Hamraborg í Hofi á morgun sunnudag kl. 17.
Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna, gefur ungu fólki tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum með flutningi listafólks. Nú hafa 14 unghöfundar unnið með listafólki að útsetningu laganna 11 sem komust áfram í ár. Afrakstur vinnunnar má sjá og heyra á tónleikunum þegar þau verða flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum.
Ungtónskáldin eru frá Akureyri og Hrísey á aldrinum 11 – 15 ára.
Hljómsveitina skipa:
Ásdís Arnardóttir – selló
Emil Þorri Emilsson – slagverk
Greta Salóme – fiðla og söngur
Ívar Helgason - söngur
Jón Þorsteinn Reynisson - harmonikka
Kristján Edelstein – gítar
Petrea Óskarsdóttir - þverflauta
Risto Laur – flygill
Tóma Leó Halldórsson - bassi
Vilhjálmur Ingi Sigurðsson - trompet
Kristján Edelstein og Greta Salóme Stefánsdóttir sjá um útsetningu verkanna fyrir hljómsveit og Gréta Salóme er tónlistarstjóri.
Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE.