Á að skreyta um helgina?
Norðurorka minnir okkur á hvers skal gæta í sambandi við útiseríur og annað jólaskraut en ekki þarf að efast um að margir munu nota gott veður um helgina til þess að ,,punta og pena”.
Skilaboðin frá NO eru hér meðfylgjandi.
Nú er hrekkjavakan liðin og jólaseríur komnar í glugga víða um bæ.
Hér er smá föstudagsleikur um leið og við minnum fólk á að fara gætilega í aðdraganda jóla t.d. með því að:
Varast óvönduð jólaljós
Henda gömlum jólaljósum sem eru úr sér gengin
Skipta um rafhlöður í reykskynjurum fyrir jólin
Láta logandi kerti aldrei standa ofan á raftæki
Njótum jólaundirbúningsins með öruggum hætti - hóhóhó!