Jákvæð þróun fyrir börn og starfsfólk
„Við munum halda áfram að þróa gjaldskrárbreytingar í leikskólum en teljum þetta hafi verið afar góða breytingu og jákvæða þróun í starfsumhverfi í leikskólum á Akureyri bæði fyrir starfsfólk og börn,“ segir í bókun meirihluta bæjarráðs.
Anna Elísa Hreiðarsdóttir lektor við HA kynnti á fundi bæjarráðs rannsókn sem hún gerði með Svövu Björgu Mörk lektor við HÍ á starfsumhverfi í leikskólum í kjölfar gjaldskrárbreytinga sem varð 1. janúar 2024 hjá Akureyrarbæ. Breytingin fól í sér sex gjaldfrjálsa tíma á dag.
Tveir fulltrúar minnihlutans, þær Hilda Jana Gísladóttir S-lista og Ásrún Ýr Gestsdóttir V-lista segja mikilvægi rannsókna ótvíræð og ánægjulegt
að fá kynningu á niðurstöðum á viðhorfum starfsfólks leikskóla til kerfisbreytinga á leikskólakerfinu á Akureyri. Niðurstöðurnar séu í samræmi við það sem lagt var upp með. Starfsfólk leikskóla er almennt jákvætt til breytinganna, meta m.a. að áhrifin fyrir börn séu jákvæð og að starfsaðstæður þeirra séu betri og að þeim líði betur.
Áhrif á foreldra verði rannsökuð
„Það er hins vegar áhyggjuefni að enn sem komið er séu ekki líka rannsökuð áhrif breytinganna á foreldra, enda erfitt að aðskilja velferð barna og fjölskyldna þeirra. Jafnréttisstofa hefur lagt áherslu á að meta þurfi áhrifin á ólíka hópa foreldra t.d. út frá kynjasjónarmiði, þjóðerni, hvort að um sé að ræða einstæða foreldra eða foreldra í sambúð. Til þess að tryggja jákvæða heildarniðurstöðu til framtíðar, sátt og stöðugleika, er mikilvægt að horfa einnig til þess og meta hvort og þá hvernig hægt sé að koma til móts við ólíka hópa.“