Tónleikar til styrktar kirkjubyggingu í Grímsey
Miðvikudaginn næstkomandi kl. 20 verða haldnir tónleikar í Akureyrarkirkju til styrktar byggingu nýrrar kirkju að Miðgörðum í Grímsey. Yfirskrift tónleikanna er Sól rís í Grímsey.
Á styrktartónleikunum í Akureyrarkirkju koma fram nokkrir norðlenskir listamenn, sem allir gefa vinnu sína:
- Anna Skagfjörð
- Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir
- Friðrík Ómar
- Kristjana Arngrímsdóttir
- Óskar Pétursson
- Stefán Elí
- Tríó Jónasar Þórs, Ívars og Valmars
Hljómsveit á tónleikunum skipa:
- Emil Þorri Emilsson
- Jón Þorsteinn Reynisson
- Kristján Edelstein
- Stefán Gunnarsson
- Valmar Väljaots
Kynnir á tónleikunum er Oddur Bjarni Þorkelsson úr Ljótu hálfvitunum.
Að kvöldi 21. september 2021 brann Miðgarðakirkja í Grímey til grunna, ásamt öllum kirkjumunum hennar. Slökkvilið eyjarinnar þurfti fljótlega að lúta í lægra haldi en kirkjan varð alelda á örskömmum tíma í stífri norðanátt. Íbúar gátu því ekkert aðhafst og máttu horfa á sóknarkirkju sína brenna til grunna á skammri stundu.
Grímseyingar voru strax staðráðnir í byggja nýja kirkju. Miðgarðakirkjan var friðuð, langelsta hús Grímseyjar og sameiningartákn. Í kirkjunni hafa margar kynslóðir Grímseyinga átt sínar stærstu stundir bæði í gleði og sorg. Bruninn var því mikið áfall fyrir eyjarskeggja og virðist í raun hafa snert við allri þjóðinni.
Bygging nýrrar kirkju er viðamikið samfélagslegt verkefni sem Grímseyingar leggja nú allt kapp á að verði að veruleika. Þegar hafa safnast nokkrir fjármunir til byggingar hinnar nýju kirkju og eru eyjarskeggjar afar þakklátir öllum þeim sem hafa lagt verkefninu lið. Grímseyingar standa þó frammi fyrir þeirri staðreynd að enn vantar töluvert fjármagn til framkvæmdarinnar. Nánari upplýsingar hér
Miðasala á tónleikana er á tix.is
Þeim sem vilja styrkja söfnunina með frjálsum framlögum er bent á söfnunarreikning Miðgarðakirkju.
- Kennitala: 460269-2539
- Reikningsnúmer: 565-04-250731