Töluverðar fjárfestingar hjá Höfnum Norðurþings
Á liðnu ári var lokið við framkvæmdir við Húsavíkurhöfn á nýrri flotbryggju fyrir hvalaskoðun, auk þess var sett upp tenderbryggja til að taka á móti farþegum skemmtiferðaskipa.
Bókanir skemmtiferðaskipa fyrir árið 2025 eru með ágætum eins og fram hefur komið og betri en síðastliðið ár. Það er einstakt ánægjuefni að skemmtiferðarskip hafa bókað fjórar komur á Raufarhöfn næsta sumar.
Hafnir Norðurþings hafa lagt mikinn metnað í markaðsstarf í samstarfi við Húsavíkurstofu og vonir standa til að það skili enn meiri árangri þegar fram í sækir.
Töluverðar fjárfestingar eru fyrirhugaðar hjá Höfnum Norðurþings á árinu 2025. Má þar nefna kaup á dráttarbát til að þjónusta stærri skip og svokallaður Þvergarður í Húsavíkurhöfn verður lengdur um 50 metra, sem mun bæta þjónustu við sjávarútveginn og ferðaþjónustuna