27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Tíu verk valin valin til þátttöku í Upptaktinum
Tíu verk, eftir 12 ung og upprennandi tónskáld, hafa verið valin til þátttöku í Upptaktinum á Akureyri. Höfundarnir munu vinna áfram að útsetningu sinna verka í vinnusmiðjum undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna, þeim Grétu Salóme og Kristjáni Edelstein.
Stóra stundin verður svo sunnudaginn 24. apríl þegar tónskáldin og aðstandendur þeirra hlýða á atvinnuhljóðfæraleikara flytja verkin á glæsilegum tónleikum í Menningarhúsinu Hofi.
Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu. Upptakturinn er styrktur af SSNE.