Þorsteinn hættir í stjórn Iðnaðarsafnsins
Þorsteinn Einar Arnórsson sem setið hefur í stjórn Iðnaðarsafnsins frá upphafi eða í 25 ár hefur sagt sig úr stjórninni.
Þorsteinn Einar Arnórsson sem setið hefur í stjórn Iðnaðarsafnsins frá upphafi eða í 25 ár hefur sagt sig úr stjórninni.
"Eru þetta vissulega mikil tíðindi og vond því engin maður hefur betri þekkingu á sögu iðnaðar hér í bæ, sem og hefur Þorsteinn staðið vaktina á safninu sem hollvinur alla tíð," segir á facebooksíðu Iðnaðarsafnsins.
"Ljóst er að skarð það er Þorsteinn skilur eftir sig verður ekki fyllt og óhætt er að segja að brottför Þorsteins úr stjórninni er okkur öllum mikið áfall og í raun er þetta mikið áfall fyrir Iðnaðarbæinn Akureyri enda alveg ljóst að framlag Þorsteins til safnsins og þar með til sögu Akureyrar alla tíð verður ekki metið til fjár.
Það er svo Þorsteins sjálfs að upplýsa hvað olli því að hann tók þessa ákvörðun.
Varmaður Þorsteins í stjórn Iðnaðarsafnsins er Tryggvi Jóhannesson varformaður Einingar -Iðju .