Þorsteinn efstur hjá Sósíalistum

Þorsteinn Bergsson verður í fyrsta sæti fyrir Sósíalistaflokkinn í Norðausturkjördæmi.
Þorsteinn Bergsson verður í fyrsta sæti fyrir Sósíalistaflokkinn í Norðausturkjördæmi.

Þorsteinn Bergsson, rithöfundur og þýðandi verður í fyrsta sæti á lista Sósíalistaflokks. Hann býr á Egilsstöðum en er fyrrum sauðfjárbóndi í  í Hjaltastaðaþinghá.

 „Hann er vinstrimaður af öllu hjarta og eignarhald á landi og fyrirtækjum sem telja má til nauðsynlegra innviða er honum hugleikið. Hann telur brýnt að ríki og sveitarfélög grípi hraustlega inn í húsnæðismál og tryggja fólki aðgang að leiguhúsnæði á mannsæmandi kjörum. Fjármálakerfinu þarf að gera ljóst að það á að styðja við fjölskyldur og fyrirtæki í landinu en ekki sjúga úr þeim þróttinn. Hann er mörgum kunnur,“ segir í tilkynningu. 

Nýjast