Þórsarar komnir í 8 liða úrslit í bikarnum
Þór Akureyri heldur sigurgöngu sinni áfram, nú í Maltbikarnum í körfubolta karla og er komið í 8 liða úrslit eftir sigur á nágrönnum sínum í Tindastóli frá Sauðárkróki í hörkuspennandi leik í Íþróttahöllinni á Akureyri seinni partinn í dag.
Gríðarleg stemmning var í íþróttahöllinni en bæði lið hafa verið á miklu skriði í Dominos-deildinni og var því fyrirfram búist við hörku leik. Það gekk eftir, leikurinn var spennandi frá upphafi til enda.
Tindastóll leiddi í hálfleik, 50:44. Heimamenn sigu hins vegar fram úr í lokaleikhlutanum og lönduðu að lokum nokkuð sannfærandi sigri, 93:81.
Stigahæstur hjá heimamönnum var Darrel Keith Lewis með 34 stig og 8 fráköst en hjá Tindastóli var Antonio Hester stigahæstur með 32 stig og 11 fráköst.