Slökkvilið Akureyrar kallað út 4.171 sinni árið 2024

Varðliðið sinnti 3.066 sjúkraflutningum á landi árið 2024, en af þeim voru 29% útkalla í forgangi F1 og F2. Farið var í 282 flutninga út fyrir starfssvæði liðsins, og er það aukning um 38% frá árinu 2023. Fækkun var á erlendum ferðamönnum milli ára um 14%.

Sjúkraflugið er stór partur af starfsemi liðsins en farið var í 943 sjúkraflug á árinu 2024 með 973 sjúklinga. Það er aukning um 3% í sjúkraflugum á milli áranna 2023 og 2024. Um 44% fluga ársins 2024 voru í forgangi F1 og F2. Í 6,4% tilfella var flogið með gjörgæslusjúkling og í 7% tilfella var flogið með fleiri en einn sjúkling. Alls var flogið með 33 sjúklinga í 30 flugum þar sem upphafs- eða áfangastaður flugs var utan landsteina Íslands.

Dælubílar voru kallaðir út 162 sinnum árið 2024 en það er 17% aukning frá árinu 2023.

Frá þessu segir í tilkynningu frá slökkviliðinu.

Árlega heimsækir Slökkvilið Akureyrar elstu börnin í leikskólunum á Eyjafjarðarsvæðinu til þess að fræða börnin um eldvarnir 

Nýjast