20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Þjónustunefnd AA leitar að framtíðarhúsnæði
Brýnt er að ráðast í gagngerar endurbætur á húsinu að Strandgötu 21 þar sem AA-samtökin á Akureyri hafa haft aðstöðu sína um langt árabil.
Húsið, sem var byggt árið 1897, er í eigu Akureyrarbæjar og þarf að endurnýja þak þess, skipta um glugga, og koma í veg fyrir fúa og rakaskemmdir. Enginn þarf að velkjast í vafa um mikilvægi starfs AA-samtakanna fyrir samfélagið okkar og samtökin verða í húsinu þar til önnur lausn finnst á húsnæðismálum þeirra.
Ástand hússins er hins vegar orðið afar slæmt og því leitar þjónustunefnd AA-hússins nú að nýju framtíðarhúsnæði til leigu með stuðningi Akureyrarbæjar.
Frá þessu segir á Facebooksíðu Akureyrarbæjar.