27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Tæplega 80 þúsund gistinætur og Íslendingar í miklum meirihluta
mth@vikubladid.is
Aðsókn að tjaldsvæðinu á Hömrum hefur aldrei verið meiri það sem af er þessu ári þegar miðað er við sama tíma undanfarin ár. Í raun eru einungis örfáir dagar fyrstu fjóra mánuði ársins þar sem ekki eru einhverjir gestir á svæðinu.
Ásgeir Hreiðarsson framkvæmdastjóri Útilífsmiðstöðvar skáta á Akureyri segir að bjartsýni ríki fyrir komandi sumar. „Við trúum því að veðrið verði áfram með okkur í liði og að við eigum gott og ferðaríkt sumar í vændum.”
63% aukning milli ára
Ásgeir segir að liðið ár hafi slegið met hvað aðsókn varðar. Þrátt fyrir að samkomutakmarkanir hafi verið í gildi af og til á síðastliðnu ári var slegið aðsóknarmet á tjaldsvæðum bæjarins. Gistinætur á báðum svæðum, við Hamra og á svæðinu við Þórunnarstræti urðu á árinu 2021 samtals 79.500 sem er mikil aukning frá árinu þar á undan. Nemur aukningin milli ára um 63% milli áranna 2020 til 2021.
Íslendingar voru bróðurpartur þeirra sem naut lífsins á tjaldsvæðum Akureyrar, eða 85% af heildarfjölda gistinátta liðins árs. Útlendingar voru 15% gestanna.
“Af þessum tæplega 80 þúsund gistinóttum í fyrra voru um 15 þúsund á tjaldvæðinu við Þórunnarstræti,” segir Ásgeir.
Tvö ný svæði í notkun á Hömrum
Hann segir að nú á komandi sumri verði ekki opið við Þórunnarstrætið, forsvarsmenn Akureyrarbæjar ætli sér að taka það svæði undir aðra starfsemi. „Í kjölfar þess að það tjaldsvæði dettur út hefur verið ráðist í að stækka svæðið á Hömrum til norðurs og við vonum að þau verði tilbúin til notkunar í sumar,” segir Ásgeir.
Hann segir gleðilegt hversu mikil aðsókn hefur verið að tjaldsvæðinu að Hömrum það sem af er ári og nánast upp á hvern dag nú fyrri hluta ársins hafi dvalið þar gestir. Nefnir sem dæmi að í mars voru um 500 gistinætur skráðar á Hömrum og í apríl voru þær 967 talsins.
„Mest eru þetta erlendir ferðamenn á litlum húsbílum, þó einn og einn gestur komi með tjald og Íslendingarnir eru aðeins farnir að viðra hjólhýsi sín,” segir Ásgeir.