Sýningin Helvítis krabbamein á Amtsbókasafninu á Akureyri
Helvítis krabbamein er yfirskrift sýningar sem stendur út febrúarmánuði á Amtsbókasafninu á Akureyri. Þar sýnir Anna María Hjálmarsdóttir ljósmyndir og málverk sem hún vann að mestu á liðnu hausti þegar hún fylgdi vinkonu sinni í beinmergsskipti sem fram fóru í Lundi í Svíþjóð. Vinkonan, Kristrún Pétursdóttir greindist með bráðahvítblæði í fyrra vor.
Anna María fór í lok september Kristrúnu og eiginmanni hennar Höskuldi Stefánssyni þegar henni bauðst að fara í beinmergsskipti. Höskuldur og Björgvin Kolbeinsson maður Önnu Maríu eru systrasynir og tókst vinátta með þeim stöllum þegar bæði pörin höfðu komið sér upp langtímastæði fyrir hjólhýsi í Vaglaskógi fyrir fáum árum.
Önnu Maríu hafði í fyrra verið úthlutað plássi á Amtsbókasafninu fyrir sýningu og kom febrúar í hennar hlut. Hún hafði hugsað sér að mála myndir af sýnum uppáhaldsskáldum og hafa á þeirri sýning. „Lífið er skrítið og oft ruglingslegt,“ segir hún en þegar þessi óvænta stefna varð í haust kviknaði ný hugmynd, að skrá allt ferlið sem fylgist svo stórri aðgerð sem beinmergsskipti eru og veita fólki innsýn í hvað bíður þeirra sem undirgangast slíkt.
Barðist eins og hennar var von og vísa
„Kristrún barðist eins og hennar var von og vísa og sigraðist á krabbameininu. Hún var komin í annan blóðflokk og með nýtt DNA. Við áttum alveg dásamlegan tíma þarna úti í Lundi meðan á þessu stóð, fórum í gegnum allan tilfinningaskalanna, bæði gleði og sorg en fyrst og fremst vorum við þakklát fyrir hversu vel gekk,“ segir Anna María. Þær stöllur hefðu allan tímann unnið að verkefninu vegna sýningarinnar sem þær ætluðu báðar að standa að. Teknar voru fjölmargar myndir á tímabilinu frá því í byrjun október þegar aðgerðin hófst. „Okkur langaði að varpa ljósi á þessu miklu baráttu sem fólk lendir í, alla þessa miklu upplifun sem fylgir öllu ferlinu,“ segir Anna María, en á sýningunni er einnig varpað upp færslum sem hún sendi heim á valinn hóp sem fylgdist daglega með því sem upp kom úti í Lundi.
Anna María hélt heim á leið skömmu fyrir jól, 15. desember og kvaddi þau hjón Kristrúnu og Höskuld, en þau áttu bókað flug heim strax á nýju ári, 5. janúar. Milli jóla og nýjárs veiktist Kristrún, fékk veirusýkingu og leitaði á sjúkrahús því hún var orðin frekar slöpp. „Hún var lögð inn hið snarasta og skemmst frá því að segja að vírusinn sem hún fékk stökkbreyttist í mjög ágengt eitlakrabbamein sem dró hana til dauða á mjög skömmum tíma, hún lést daginn sem hún ætlaði sér að koma heim.“
Anna María segir þetta allt hafa verið mjög óraunverulegt, sjálf hafi hún sökkt sér í vinnu við að koma sýningunni upp. „Ég tók eftir því að þær myndir sem ég málaði áður en Kristrún dó voru í björtum litum og yfir þeim mikil gleði, en eftir útför og þegar hinn napri veruleiki blasir við að þessu er endanlega lokið, þá verða litirnir dekkri og drungalegra yfir myndunum.“