Hagnaður bankanna gríðarlegur en samfélagsleg ábyrgð engin

Trúnaðarráð Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) og Sjómannafélag Eyjafjarðar ítreka nauðsyn þess að sveitarfélögin sýni ábyrgð og styðji við kjarasamninga með því að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám.

„Heimilin í landinu hafa um þónokkurt skeið borið hitann og þungann af hárri verðbólgu í formi hækkaðs húsnæðiskostnaðar og matvöruverðs, aukinn kostnaður við grunnþjónustu er ekki þar á bætandi,“ segir í ályktun félaganna. Bent er á að stýrivexti hafi verið lækkaðir um 0,5 prósentustig sem sé ánægjulegt.

Í kjölfarið tilkynnti Íslandsbanki um lækkun á breytilegum óverðtryggðum húsnæðisvöxtum en um 0,30%. „Undanfarin misseri hafa okurvextir bankanna ýtt fólki úr óverðtryggðum lánum yfir í verðtryggð lán, en það er sá lánaflokkur sem Íslandsbanki hækkar vexti á. Raunvextir á verðtryggðum lánum eru mjög háir eða um 4,4%, og um 5% á óverðtryggðum lánum, til samanburðar eru raunvextir á óverðtryggðum lánum í Noregi 2,3%. Hagnaður íslensku bankanna er gríðarlegur, en samfélagsábyrgð þeirra er engin, spurning er hvort setja þurfi löggjöf um hámarksvexti á íbúðalánum. Samfélagsleg ábyrgð þarf að ná til allra, ekki bara launafólks,“ segir í ályktun.

Nýjast