Styrkur frá starfsmönnum ÍME

Eva Björg Óskarsdóttir verkefnastjóri móttöku, kynninga og vefmiðla tók við styrknum í íþróttamiðstö…
Eva Björg Óskarsdóttir verkefnastjóri móttöku, kynninga og vefmiðla tók við styrknum í íþróttamiðstöðinni úr höndum þeirra Jakobs Sævars Sigurðssonar og Ástu Heiðrúnar Stefánsdóttur. Mynd á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar

Starfsmannafélag Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar stóð fyrir fjársöfnun í bleikum október til handa Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.

Alls söfnuðust 60 þúsund krónur með liðsinni gesta íþróttamiðstöðvarinnar sem fengu frítt kaffi en gátu á móti styrkt söfnunina með frjálsum framlögum. Starfsfólk klæddist m.a. bleikum vinnubolum í október til að minna á verkefnið og fjársöfnunina.

Nýjast