Sýndu kraft með prjóni Amtsbókasafnið á morgun laugardag

Á morgun laugardag á Amtinu milli kl 11 og 13
Á morgun laugardag á Amtinu milli kl 11 og 13

Í tilefni af vitundarvakningu Krafts verður boðið uppá pop-up prjónaviðburð í Amtbókasafninu á morgun laugardag milli kl 11 og 13.

Prjónurum bjóðum við að koma með prjónana með sér (sokkaprjóna nr. 4.5) og spreyta sig á nýrri sokkauppskrift byggða á verkum Tótu Van Helzing.

Sokkauppskriftin er hluti af vitundarvakningu Krafts þar sem duglegir prjónarar um allt land eru hvattir til að prjóna ullarsokka til styrktar Krafti.

Garn verður á staðnum í boði ÍSTEX.

Sokkarnir fara í gjafapoka sem Kraftur gefur öllum sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-40 ára. Gjafapokann fær fólk afhentan á krabbameinsdeildum þegar það mætir í meðferð eða í fræðsluviðtal til hjúkrunarfræðings.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðburðarhaldara

Nýjast