27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Stóri plokkdagurinn á Akureyri á sunnudag
Stóri plokkdagurinn verður haldinn næsta sunnudag, 24. apríl, og þá eru Akureyringar og landsmenn allir hvattir til að tína (plokka) rusl. Greint er frá þessu á heimasíðu Akureyrarbæjar.
"Nú er frábær tími til að hreinsa bæinn okkar og koma honum í sparifötin fyrir sumarið, enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hopar á vorin. Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska," segir í tilkynningunni.
Í Facebook-hópnum Plokk á Akureyri er tilvalið að hafa samband við aðra plokkara, merkja sér svæði til að hreinsa og láta vita hvernig gengur með máli og myndum.
Afrakstur plokksins má skilja eftir í sérstökum gámum sem settir verða við allar grendarstöðvar bæjarins frá miðvikudeginum 20. apríl fram til mánudagsins 25. apríl.
Stjórnendur og starfsfólk stofnana og fyrirtækja á Akureyri eru hvött til að plokka í kringum sína vinnustaði í vikunni og hita þannig upp fyrir stóra daginn.
Nokkur góð ráð:
-Plokkum og hreyfum okkur í leiðinni – æfing dagsins
-Klæðum okkur eftir veðri
-Notum hanska og tangir ef þær eru til
-Virkjum alla fjölskylduna, vini og nágranna en hver á sínum hraða.