„Stálmúsin“ hélt lífi í Akureyringum
Akureyri á enn möguleika á að bjarga sér frá falli úr Olís-deild karla í handknattleik eftir jafntefli gegn ÍBV á útivelli í gær og hagstæðum úrslitum úr leik Stjörnunnar og Gróttu. Akureyri náði dramatísku jafntefli gegn ÍBV, 22-22, en Andri Snær Stefánsson skoraði jöfnunarmark Akureyrar á lokasekúndu leiksins. Eftir þessi úrslit þurftu Akureyringar að bíða eftir úrslitum úr leik Stjörnunnar og Gróttu og treysta á að Stjarnan myndi ekki vinna leikinn. Það gekk eftir þar sem liðið gerðu einnig jafntefli, 31-31, og því mætast Akureyri og Stjarnan í hreinum úrslitaleik um áframhaldandi veru í efstu deild í lokaumferðinni. Sá leikur fer fram í Garðabæ á heimavelli Stjörnunnar þriðjudaginn 4. apríl.
Í Morgunblaðinu er sagt frá því að áætlað sé að fjölga liðum í efstu deild frá og með næsta tímabili og vegna þess mun væntanlega aðeins eitt lið falla úr deildinni. Það ræðst þó ekki endanlega fyrr en 9. maí þegar ljóst verður hve mörg félög skrá sig til leiks á næsta Íslandsmóti. Ef þau verða 20 eða fleiri verða 12 lið í úrvalsdeildinni. Liðin eru 22 í ár. Ef þeim fækkar í 19 verða áfram tíu lið í úrvalsdeild og þá fellur liðið í 9. sæti. FH, ÍBV, Haukar, Afturelding, Selfoss, Valur og Grótta hafa tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Áttunda liðið verður Fram eða Stjarnan. Um leið er ljóst að Fram, Stjarnan og Akureyri geta öll lent í 9. sætinu og gætu þurft að bíða til 9. maí eftir endanlegum úrskurði um hvar þau leika að ári.
Erfið bið í fluginu heim
Á vef Akureyrarliðsins segir að það þegar lið Akureyrar hafi farið um borð í flugvélina norður hafi stemmningin verið súr, því Stjarnan var þá fimm mörkum yfir gegn Gróttu og voru það síðustu fréttir sem leikmennirnir fengu áður en þeir þurftu að slökkva á símanum. „En eftir nokkra stund gargaði Friðrik Svavarsson yfir alla vélina að leikurinn hefði endað 31-31 en jafnframt að hann væri búinn að slökkva aftur á símanum. Óhætt er að segja að þungu fargi hafi létt af mönnum og stemmingin heldur betur léttari það sem eftir var flugferðarinnar,“ segir á vef Akureyrarliðsins.