Staða hitaveitunnar erfið - Neyðarstjórn virkjuð

Neyðarstjórn Norðurorku var virkjuð fyrr í dag     Mynd no.is
Neyðarstjórn Norðurorku var virkjuð fyrr í dag Mynd no.is

Neyðarstjórn Norðurorku var virkjuð fyrr í dag en í viðbragðsáætlun hitaveitu kemur fram að það skuli gert þegar staðan í heitavatnstönkum nálgast öryggismörk.

Á síðustu dögum hefur verið óskað eftir því við stórnotendur að dregið sé eins og kostur er úr heitavatnsnotkun í þeirri kuldatíð sem nú ríkir og er rétt að þakka þeim fyrir góð viðbrögð. Einnig hefur almenningur verið hvattur til að huga að sinni notkun, fara vel með heita vatnið og nýta það skynsamlega. Hér má sjá eldri frétt um málið.

Staðan í dag gefur hinsvegar tilefni til áframhaldandi aðgerða og hvatningar til ábyrgrar heitavatnsnotkunar í dag, í kvöld og fyrstu daga nýs árs. Gamlárskvöld er framundan með öllum þeim skemmtilegu hefðum og venjum sem því fylgja. Í því samhengi er rétt að minna sérstaklega á mikilvægi þess að halda varmanum inn í húsum og láta til dæmis útidyr ekki standa opnar. 

Um leið og við óskum ykkur öllum gleðilegs árs með þökk fyrir það liðna bendum við á að hér má finna fleiri góð ráð til ábyrgrar orkunotkunar.

 

Nýjast