27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Söfnuðu fyrir börn í Úkraínu
Hinir fimm fræknu eru frá vinstri Sigmundur Ævar Ármannsson, Hilmar Marínó Arnarson, Stefán Berg Jóhannsson, Bjarni Sævar Eyjólfsson og Friðrik Már Hjaltason
Þessir fimm fræknu Þórsarar vildu leggja sitt að mörkum til styrktar börnum í Úkraínu. Þeir gengu í hús og seldu perl sem þeir höfðu unnið og tóku einnig við frjálsum framlögum. Þeim var virkilega vel tekið og vilja skila þakklæti til þeirra sem það gerðu. Drengjunum fannst þó nauðsynlegt að bæta við það sem safnast hafði og sóttu 5000 krónur hver í sparibauka sína og gáfu í söfnunina.
Afrakstrinum sem eru 54.600 krónur var í dag komið til Rauða krossins á Akureyri og þarf ekki að efast um að þessir peningar koma sér vel.