Afleit veðurspá á morgun sýnum gát
Spáð er afar slæmu veðri seinnipart föstudagsins 15. nóvember. Óttast er að sambærilegar aðstæður gætu skapast á Akureyri og í september 2022, þegar sjór flæddi yfir hluta Oddeyrar og olli miklu tjóni.
Veðurstofa Íslands varar við mjög hvössum og hættulegum vindhviðum við fjöll. Einnig er spáð talsverðri eða mikilli ofankomu og skafrenningi, sem getur valdið lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum á fjallvegum og láglendi. Samgöngutruflanir eru líklegar, og fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Gul veðurviðvörun verður í gildi fram yfir helgi.
Íbúar eru hvattir til að fylgjast vel með stöðu mála og gera nauðsynlegar ráðstafanir. Starfsmenn Akureyrarbæjar eru í viðbragðsstöðu og verða uppfærslur birtar hér ef staðan breytist.
Það er á heimasíðu Akureyrar sem fyrst er vakijn athygli á þessu.