Snýr aftur í heimahagana

Gabríel kátur kominn heim í Hrísey
Gabríel kátur kominn heim í Hrísey

Gabríel Ingimarsson snýr aftur í heimahagana og  tekur við stöðu rekstrarstjóra Hríseyjarbúðarinnar  eftir nokkurra ára fjarveru með viðkomu í Reykjavík, Laugum í Reykjadal og Brussel.  Hann kemur til  Hríseyjarbúðarinnar frá Össuri þar sem hann starfaði sem sérfræðingur í fjármáladeild í þrjú ár. Garðar er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál.

Hann áformar að leggja áherslu á það að bæta rekstrargrundvöll verslunarinnar með auknum viðskiptum við eyjaskeggja hyggst gera það  með breiðara vöruúrvali svo verslunin geti sinnt öllum helstu nauðsynjakaupum Hríseyinga.  Sér hann fram á skemmtileg tækifæri í að að víkka út hlutverk búðarinnar í samfélaginu með þessum hætti.

Gabríel segist vera þakklátur þeim móttökum sem hann hefur fengið á þeim stutta tíma síðan hann hóf störf og hlakkar til að vinna með og í þágu íbúa Hríseyjar á komandi tímum. ,,Það er gríðarlega verðmætt að fá tækifæri að snúa aftur í Hrísey og taka við rekstri verslunarinnar. Það hefur verið mikill uppgangur í Hrísey og ég er ánægður að geta tekið þátt í og stuðlað að því, í litlu samfélagi munar um allt og ég er spenntur að leggja mitt lóð á vogarskálarnar.” segir Gabríel.

Vill styrkja verslun í Hrísey

Hríseyjarbúðin var stofnuð árið 2015 af fólki í eyjunni og hugsuð sem samfélagslegt verkefni. Í dag eru hluthafar í búðinni 79 talsins. Verslunin er opin allt árið og er þar einnig rekin afgreiðsla fyrir Póstinn, mannlegur hraðbanki, afhendingarstöð fyrir Vínbúðina og sjálfsafgreiðsluverslun utan opnunartíma.

,,Það eru mörg spennandi tækifæri í rekstri Hríseyjarbúðarinnar til að bæta þjónustu við íbúa jafnt sem sumarhúsaeigendur og ferðamenn. Rekstri sjálfstæðra verslana á landsbyggðum Íslands fylgja einstakar áskoranir en tækifærin eru alveg jafn einstök og huga þarf sérstaklega að því að auka og tryggja rekstrarstoðir Hríseyjarbúðarinnar til lengri tíma,” bætir Gabríel við.

Nýjast