27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Skóflustunga tekin að nýrri kirkju í Grímsey
Í Grímsey blakti íslenski fáninn víða við hún í gær, er fyrsta skóflustunga var tekin að nýrri kirkju í eyjunni.
Eins og alþjóð veit brann Miðgarðakirkja í Grímsey til grunna ásamt öllum kirkjumunum síðastliðið haust. Það var mikið reiðarslag fyrir Grímseyinga sem þó voru strax staðráðnir í að reisa nýja kirkju. Síðan þá hefur ötullega verið unnið að undirbúningi að byggingu hinnar nýju kirkju. Hún mun rísa á grunni þeirrar gömlu en vera nokkuð stærri. Þá mun hún auk helgihalds þjóna hlutverki menningarhúss.
Í tilefni dagsins flutti Sr. Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur Grímseyinga, stutta hugvekju. Ungur Grímseyingur, Konráð Sveinn Svafarsson, tók síðan fyrstu skóflustunguna. Að því loknu var boðið upp á veislukaffi að hætti Grímseyinga.
Í tilkynningu kemur fram að fornleifafræðingar muni í vikunni kanna hvort fornleifar sé að finna þar sem hin nýja kirkja mun rísa. Ef engar mennskar minjar finnast verður í framhaldinu grafinn grunnur að nýrri kirkjubyggingu og hafist handa við smíði hennar. Áætlað er að vígja nýja kirkju sumarið 2023.
„Bygging nýrrar kirkju er viðamikið samfélagslegt verkefni sem Grímseyingar leggja nú allt kapp á að verði að veruleika. Þegar hafa safnast nokkrir fjármunir til byggingar hinnar nýju kirkju og eru eyjarskeggjar afar þakklátir öllum þeim sem hafa lagt verkefninu lið. Grímseyingar standa þó frammi fyrir þeirri staðreynd að enn vantar nokkuð fjármagn til framkvæmdarinnar og hafa af því tilefni opnað söfnunarsíðuna grimsey.is/kirkja,“ segir í tilkynningunni.
Söfnunarreikningur Miðgarðakirkju
Kennitala: 460269-2539
Reikningsnúmer: 565-04-250731