Skiptinemi í Kína

Katrín Helga Ómarsdóttir er þetta skólaár skiptinemi í Beijing í Kína.   Mynd  VMA
Katrín Helga Ómarsdóttir er þetta skólaár skiptinemi í Beijing í Kína. Mynd VMA

Á heimasíðu VMA í dag gefur að líta viðtal við Huldu Ómarsdóttur en hún útskrifaðist af listnáms- og hönnunarbraut VMA vorið 2021. Hulda ákvað að því loknu, eins og hún orðar það, að skipta algjörlega um gír og sækja um nám í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands. Hún er núna á þriðja ári í náminu og ver þessu skólaári í skiptinámi í Kína.

,,En hvernig kemur land og þjóð Katrínu fyrir sjónir? Er Kína eitthvað í líkingu við það sem hún átti fyrirfram von á?

Kína er alveg stórkostlegt land. Vegna námsins við HÍ var ég orðin nokkuð kunnug sögu landsins og tungumáli en það getur ekkert undirbúið mann fyrir komuna hingað. Menningin er allt öðruvísi en heima en ég hafði kynnst henni svolítið í gegnum kennarana mína heima á Íslandi, sem eru allir af kínverskum uppruna. Fólkið sem ég hef kynnst hér hefur allt verið afar indælt. Enska er ekki töluð mikið hér, þó ég sé í höfuðborginni Beijing, en fólkið reynir alltaf sitt besta að eiga einhver samskipti þótt það sé stundum bara með handabendingum. Sumir Kínverjar, og þá sérstaklega þeir sem eru úr dreifbýlinu, eru ekki vanir því að sjá útlendinga. Stundum er beðið um að taka myndir með/af okkur útlendingunum og spyrja hvaðan við séum og hvað við séum að gera í Kína,“ segir Katrín.

Risaborgin Beijing

Peking eða Beijing er auðvitað risaborg, gríðarlega stór og fjölmenn, og því segir Katrín að það hafi tekið drjúgt langan tíma að tileinka sér borgina, að læra að rata og fara um hana.

„Skólalóðin gerir nemendum hins vegar kleift að fara ekki út fyrir hana ef við viljum það ekki. Á skólalóðinni eru þrír matsalir, innisundlaug, líkamsrækt, kaffihús, matvörubúðir, pósthús, banki, bar, veitingastaðir og margt fleira. Hér er líka hægt að panta allt sem þarf á netinu og láta senda á skólapósthúsið. Því er engin þörf að fara út til að versla sér neitt.
Ég stunda nám við Beijing Foreign Studies University á þessu skólaári. Skólakerfið hér er aðeins öðruvísi en heima, annirnar og dagarnir lengri og færri frí. Samt er kerfið fyrir okkur skiptinemana líkara því sem við erum flest vön, kennslustundir frá 8 á morgnana en geta samt verið til 5-6 á daginn. En skráningarkerfið, vistin og annað þess háttar er öðruvísi. Þegar ég kom í skólann í fyrsta skipti þurftum við að skrá okkur í skólann. Í því fólst að bíða í löngum röðum til að skrifa undir ýmsa pappíra og borga vist, sjúkratryggingu o.fl. Eftir það þegar við komum á vistina var okkur hjálpað að skrá búsetu okkar á síðu lögreglunnar, en hér þarf lögreglan alltaf að fá að vita hvar við gistum hverju sinni,“ segir Katrín

Um fimmtíu stiga hitamunur á einni viku!

Það fer lítið fyrir kristinni trú í Kína og því eru ekki haldin jól þar. Að sjálfsögðu var því ekkert jólafrí og skólinn á fullu fram að áramótum. Í byrjun janúar voru próf og síðan tók við nýársfrí. Á þessum tíma árs halda Kínverjar upp á kínverska nýárið, sem er á ýmsa lund ekki ósvipað og jól og nýár á Íslandi.

Nýársfríið hefur Katrín nýtt til þess að ferðast út fyrir Beijing og séð eitt og annað athyglisvert. Auðvitað er Kína gríðarlega stórt land og því tekur drjúgan tíma að sjá allt það markverðasta.

„Síðan ég kom hingað hef ég farið og skoðað Kínamúrinn í nágrenni Beijing og líka farið til fjögurra annara borga á mismunandi stöðum um landið; Xi‘an, Harbin, Kunming og Dali. Við fórum með skólanum til Xi‘an um miðja önn en hinar borgirnar heimsótti ég núna í janúar. Harbin er í Heilongjiang héraði lengst í Norður-Kína, með landamæri að Rússlandi. Svo fór ég til Kunming og Dali, sem eru báðar í Yunnan héraði alveg syðst með landamæri að m.a. Taílandi. Þetta stökk mitt í fríinu yfir endilangt landið var líklega áhugaverðasti hlutinn. Í Harbin var -28°C frost og snjór en í Kunming og Dali var um 20°C hiti og sól. Harbin er þekktust fyrir byggingar úr ís og snjó sem eru byggðar í einskonar garði á hverjum vetri. Kunming er hins vegar þekkt sem blómaborgin, þar sem ný og fersk blóm er alltaf að fá, meira að segja á veturna. Á minna en viku upplifði ég vetur og (íslenskt) sumar með því bara að skipta um landshluta. Þetta sýnir gríðarlega stærð þessa lands og fjölbreytileika. Þess vegna er hreinlega ómögulegt að bera saman hvern landshluta og hverja borg. Alls staðar er saga og menning sem er svipuð en samt svo öðruvísi,“ segir Katrín sem mun stunda nám sitt í hinu margbreytilega Kína til vors en koma þá aftur heim til Fróns, ríkari af reynslu og meiri kunnáttu í kínversku og kínverskri sögu og menningu".

Það er sem fyrr sagði heimasíða VMA sem fyrst segir frá

Nýjast