Síðuskóli 40 ára

Síðuskóli 40 ára     Myndir  siduskoli.is
Síðuskóli 40 ára Myndir siduskoli.is

Eins og fram hefur komið var því fagnað í gær að þá voru 40 liðin frá þvi að Síðuskóli á Akureyri tók til starfa.    Skemmtidagskrá var í Íþróttahúsi skólans  sem þótt mjög vel heppnuð en mesta athygli vakti etv ,,tískusýning" þar sem nemendur skólans  sýndu  fatatískuna frá þessum 40 árum sem liðin eru frá fyrstu skólasetningu Síðuskóla.

Að skemmtidagskrá tæmdri var skundað út í skrúðgöngu um hverfið og þegar henni var lokið biðu svignuð veisluborð  gesta sem gerðu veitingunum góð skil.

Veislugestir fylgdust vandlega með

 Fjölmennt var í Íþróttahúsi Síðuskóla

 Sýning á fatatísku nemenda  s.l. 40 ár sló svo sannarlega í gegn

 Fjölmenn skrúðganga sá til þess að afmælið fór ekki framhjá nokkrum manni

Með þvi að smella á þessa slóð hér fyrir neðan komast lesendur  í mikla myndaveislu sem er að finna á heimsíðu skólans.

https://www.siduskoli.is/is/hagnytt/isat/40-ara-afmaeli-siduskola-1


Athugasemdir

Nýjast