Ríkið eignast 85% í Hlíð gegn því að fjármagna endurbætur

Ríkið eignast 85% í Hlíð     Mynd  akureyri.is
Ríkið eignast 85% í Hlíð Mynd akureyri.is

Samkomulag hefur náðst um að Ríkissjóður Íslands standi straum af kostnaði við endurbætur og viðhald á húsnæði hjúkrunarheimilisins Hlíðar við Austurbyggð.

Fasteignin hefur verið 100% í eigu sveitarfélagsins samkvæmt þinglýsingu en með fjármögnun ríkissjóðs á framkvæmdum fyrir allt að 1.250 milljónir króna yfirtekur ríkið 85% eignarhlut í Austurbyggð 17 á móti 15% eignarhluta Akureyrarbæjar.

Framkvæmdum á hjúkrunarheimilinu skal lokið innan 18 mánaða frá því samningurinn var undirritaður 12. júlí sl. Takist ekki að ljúka öllum verkþáttum skv. fyrirliggjandi áætlun Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE) framlengist sá tími um 6 mánuði. Að þeim tíma liðnum skal kostnaður vegna viðgerða og endurbóta á eigninni umfram þá fjárhæð, svo og annar kostnaðar vegna framtíðarviðhalds, skiptast í samræmi við eignarhlut hvors aðila.

„Við hjá Akureyrarbæ höfum þrýst á ríkisvaldið að greiða úr því ófremdarástandi sem hefur skapast vegna skemmda á húsnæði Hlíðar. Frá upphafi var gengið út frá því að eignarhlutur bæjarins yrði framlag hans til viðgerðanna en því miður hefur dregist úr hömlu að ganga frá þessu samkomulagi. Frá því við skiluðum rekstrinum aftur til ríkisins snemma árs 2021, hefur engin leiga verið greidd til Akureyrarbæjar fyrir afnot af 10.000 fermetra húsnæði. Það er auðvitað ekki ásættanlegt og því var lendingin sú að ríkið eignast 85% af fasteignunum gegn því að ráðast strax í nauðsynlegar endurbætur og fjármagna þær.

Ég vona innilega að í framhaldinu komist skikk á húsnæðismál hjúkrunarheimila á Akureyri og við hjá Akureyrarbæ gerum hér eftir sem hingað til allt sem í okkar valdi stendur til þess að svo megi verða, höfum meðal annars tilbúnar lóðir fyrir hjúkrunarheimili og aðra skylda starfsemi bæði í Vestursíðu og Þursaholti. Framhald mála er alfarið á ábyrgð og í höndum ríkisins,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri.

Frá þessu segir á www.akureyri.is


Athugasemdir

Nýjast