Dagskráin 12. febrúar - 19. febrúar Tbl 6
Ólafur og Dorrit á ferð um Norðurland
05. júní, 2012 - 17:29
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú, eru á ferð um Norðurland þessa dagana og halda m.a. fundi með stuðningsmönnum sínum á svæðinu. Ólafur og Dorrit eru þessa stundina að ræða við stuðningsmenn í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík en í kvöld halda stuðningsmenn þeirra opinn fund á Akureyri. Fundurinn fer fram á Hótel Kea og hefst kl. 20.00. Á morgun halda stuðningsmenn forsetahjónanna opinn fund í Skipasmíðastöðinni á Húsavík kl. 20.00.
Nýjast
-
Akureyri - Heildarálagning fasteignagjalda er 6.444 milljónir króna
- 12.02
Heildarálagning fasteignagjalda ársins á Akureyri fyrir árið 2025 er 6.444 milljónir króna, þar af er fasteignaskattur 3.817 milljónir, lóðarleiga er 840 milljónir, vatnsgjald 479 milljónir króna, fráveitugjald 768 milljónir og sorphirðugjald 540 milljónir króna. Þetta kemur fram á vefsíðu Akureyrarbæjar. -
Akureyrarbær og Rauði krossinn - Samningur um söfnun á textíl
- 12.02
Skrifað hefur verið undir samning milli Akureyrarbæjar og Rauða Krossins við Eyjafjörð um söfnun textíls í bæjarlandinu. Nú er skylt lögum samkvæmt að halda úti sérstakri söfnun á textíl. -
Í bláum skugga á 112 deginum
- 12.02
112 dagurinn er haldinn 11 febrúar ár hvert og má segja að það hafi ekki farið framhjá bæjarbúum i gær. -
Félagslegt netöryggi er þjóðaröryggismál
- 12.02
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er 11. febrúar. Mikilvægi málaflokksins hefur sjaldan verið meira og til þess að undirstrika það hefur árið 2025 verið útnefnt sem Evrópuár um stafræna borgaravitund til þess að draga þessi mál framar á sjónarsviðið. SAFT – Netöryggismiðstöð Íslands er ábyrgt fyrir því að skipuleggja dagskrá fyrir Alþjóðlega netöryggisdaginn þar sem sérstök áhersla verður á félagslegt netöryggi. -
112 dagurinn er í dag
- 11.02
Neyðarlínan heldur merkjum 112 á lofti þann 11. febrúar ár hvert, af því dagsetningin 11.2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Það er mikilvægt að minna á þetta númer - af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð. Þema 112 dagsins að þessu sinni er „Börn og öryggi“ og er ætlunin með því að vekja fólk til vitundar um að hafa öryggi barna framar öllu. -
Haltu kjafti!
- 11.02
Þegar kona neitar að þegja og vera sæt þá finnur veröldin leið til þess að segja henni að halda kjafti. Til þess var notaður félagsdómur sem úrskurðaði verkfallið ólöglegt (3 á móti 2).Þegar kona fær þau skilaboð verkar það algjörlega öfugt á hana. Í sorg, reiði og vanmætti sínum ákveður hún að standa keik í svörtum sorgarklæðum, í vinnu sinni daginn eftir og alla daga þar til samið verður við okkur. Hún fær aðra í lið með sér, því öðrum kennurum líður eins. -
Framsýn styrkir Ungmennafélagið Bjarma
- 11.02
Ungmennafélagið Bjarmi í Fnjóskadal hefur fjárfest í skíðagönguspora ásamt beltabúnaði og tönn. Land og Skógur, sem hefur yfirumsjón með Vaglaskógi hefur tekið að sér að sjá um sporann, troða brautir, grisja og huga að öðru sem tryggir að allar aðstæður verði til fyrirmyndar. Nýi búnaðurinn mun gjörbreyta aðstöðu fyrir skíðagöngufólk og annað útivistarfólk sem sækja skóginn heim yfir vetrartímann. -
Þarf að vinna í samböndum?
- 11.02
Parsambönd eru merkileg, ólíkar manneskjur með ólíkan bakgrunn, áhugamál, skoðanir og tilfinningar finna merkingu í einhverju sameiginlegu og ákveða að eyða lífinu saman. Þó það sé ekki alltaf svo að parsamband endist lífið á enda þá einhvers staðar í byrjun sambandsins myndast rót og hugmyndir að framtíðarsýn. Framtíð sem inniheldur þessa nýju og spennandi manneskju. Parsambönd geta verið falleg, heilbrigð og uppbyggileg. Þau geta hins vegar líka verð erfið, stormasöm og leiðinleg. Það er eðlilegt að fólk í parsamböndum upplifi hvoru tveggja, fegurð og erfiðleika. Það er ekki endilega annað hvort eða. Í erfiðleikum getur falist tækifæri til þess að vinna saman í lausnaleit, ná dýpri tengingu og hlúa að því sem skiptir máli. -
Hafnasamlag Norðurlands - Óskar tilboða í byggingu þjónustuhúss
- 10.02
Hafnasamlag Norðurlands hefur óskað eftir tilboðum í byggingu þjónustuhúss á Torfunefsbryggju.