27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Niceair þrisvar í viku til Kaupmannahafnar
Niceair flýgur þrisvar i viku til Kaupmannahafnar frá og með 1 júni n.k. en frá þessu segir í tilkynningu frá félaginu nú i morgun. Eins og kunnugt er hafa ferðir til þessa verið tvær í viku en nú er slegið í og flug á þriðjudögum bætist við í sumar.
„Það hefur sýnt sig að Kaupmannahöfn er afar vinsæll áfangastaður Íslendinga og vaxandi fjöldi notar Kastrup sem tengiflugvöll um alla Evrópu. Frá Kaupmannahöfn er flogið til meira en 200 áfangastaða um allan heim og þetta nýtir nú þegar um þriðjungur farþega okkar,“ segir Helgi Eysteinsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála Niceair.
Flogið er á morgnana klukkan 0745 sem gefur góðan tíma til að hugga sig á Kastrup áður en flugið er tekið lengra síðdegis eins og það er orðað í tilkynningu. „Hér munar auðvitað mestu um að farþegar okkar eru nú að komast á lokaáfangastað innan eins dags, í stað þess að leggja land undir fót á Íslandi og gista til næsta dags til að taka flugið. Gamli höfuðstaðurinn er síðan ekki síst vinsæll sem frábær helgarferðastaður” segir Helgi.