Nemendur í vélstjórn komust í feitt

Nemendur í vélstjórn við Verkmenntaskólann á Akureyri ásamt kennurum. Frystitogarinn Snæfell EA í ba…
Nemendur í vélstjórn við Verkmenntaskólann á Akureyri ásamt kennurum. Frystitogarinn Snæfell EA í baksýn Myndir Samherji

Heimasíða Samherja segir frá því að nemendum í vélstjórn við Verkmenntaskólann á Akureyri gafst nýverið kostur á að fylgjast með endurbótum á sveifarási frystitogarans Snæfells EA, sem er í eigu Samherja. Um er að ræða sérhæft verkefni, sem krefst mikillar nákvæmni og voru erlendir sérfræðingar fengnir til landsins í tengslum við vélarupptekt og slípun á sveifarási.

Þessar vikurnar er verið að heilmála Snæfell, auk þess er unnið að ýmsum uppfærslum og endurbótum, sem Slippurinn á Akureyri sér um.

Bjarni Pétursson sviðsstjóri skipaþjónustu Slippsins segir að ákveðið hafi verið að fá til landsins sérfræðinga hjá Metalock í Þýskalandi til að slípa sveifarásinn. Yfirumsjón með vélarupptekt hafði Zeppelin Danmark Power Systems. Zeppelin Danmark er umboðsaðili fyrir MAK og Catepillar vélar.

Þáðu boðið samstundis

„ Viðurkenndir sérfræðingar í að slípa sveifarása eru tiltölulega fáir í heiminum og því var nauðsynlegt að fá þessa erlendu sérfræðinga til Akureyrar í tengslum við þetta verkefni. Hjörvar Kristjánsson skipaverkfræðingur hjá Samherja nefndi við okkur að gagnlegt gæti verið að bjóða nemendum í vélstjórn við Verkmennaskólann á Akureyri á verkstæði Slippsins og fylgjast með þegar sveitarásinn var slípaður.

Við stukkum strax á þessa góðu hugmynd og skemmst er frá því að segja að skólinn og nemendurnir þáðu boðið samstundis. Allir ferlar voru útskýrðir mjög vel fyrir nemendunum, sem fengu að mínu viti kærkomið tækifæri til að kynnast öllum þáttum slíks verkefnis,“ segir Bjarni Pétursson hjá Slippnum Akureyri.

Slippurinn og Samherji öflugir bakhjarlar

Vilhjálmur G. Kristjánsson kennari í vélstjórn við Verkmenntaskólann á Akureyri segir að þarna hafi nemendum boðist kærkomið tækifæri til að kynna sér vinnu fagmanna í viðhaldi skipavéla. Þessu tilboði Slippsins og Samherja hafi í raun ekki verið hægt að hafna.

Þessi tvö fyrirtæki, Slippurinn Akureyri og Samherji, hafa verið okkur afar hliðholl í gegnum tíðina og við höfum alltaf getað treyst á stuðning þeirra, enda mikils virði fyrir skólann að hafa góðan aðgang að skipum og fyrirtækjum sem þjónusta skipaflotann með ýmsum hætti.

Slippurinn og Samherji eru með öðrum orðum öflugir bakhjarlar skólans. Nemendurnir eru án efa reynslunni ríkari, enda voru þeir áhugasamir og spurðu margs. Fyrir mig persónulega var þetta skemmtilegt og gefandi, þar sem ég var vélstjóri á þessu skipi í töluverðan tíma,“ segir Vilhjálmur G. Kristjánsson.

Hjörvar Kristjánsson skipaverkfræðingur hjá Samherja segir afar mikilvægt að vélstjórabrautin sé sem öflugust, brautin styrki svæðið sem þekkingarsetur í haftengdri starfsemi.

 

Nýjast