Nemendur í Hlíðarskóla bæta útisvæði við skólann

Draumur nemenda Hlíðarskóla um ærlsabelg á skólalóðinni rættist í haust.  Myndir á vefsíðu Akureyrar…
Draumur nemenda Hlíðarskóla um ærlsabelg á skólalóðinni rættist í haust. Myndir á vefsíðu Akureyrarbæjar

Nemendur í Hlíðarskóla fóru af stað með áheitasöfnun í vor með von um að geta bætt útisvæðið við skólann. Að því tilefni efndu krakkarnir til áheitahlaups og söfnuðu rúmlega 170 þúsund krónum. Akureyrarbær kom til móts við krakkana, og í haust varð draumurinn að veruleika þegar ærslabelgur var settur upp við skólann.

Valdimar Heiðar Valsson, skólastjóri Hlíðarskóla, segir krakkana hafa hoppað á belgnum í þrjá daga áður en veturinn bankaði upp á. „Það var svekkjandi að ná ekki að nota hann meira áður en frostið og snjórinn kom en það er strax komin spenna að setja hann upp í vor. Maður er svo ánægður yfir þessu frumkvæði krakkanna. Þau sögðu bara hingað og ekki lengra og fóru í þetta sjálf,“ segir Valdimar Heiðar á vefsíðu Akureyrarbæjar og að nemendur séu afar stolta af belgnum.

Nemendur vinna einnig að smíði trékofa og flotbryggju. „Við grípum í þetta í smíðatímum og útikennsluvali. Þessi verkefni hafa sameinað nemendur okkar, sem eru frá öðrum bekk upp í tíunda bekk. Það hjálpast allir að við að gera umhverfið hérna meira spennandi. Við höfum fengið góða aðstoð frá fyrirtækjum á svæðinu sem gera okkur kleift að fara í þessi verkefni,“ og er þakklátur þeim sem vilja leggja skólanum lið.

Nýjast