Myndarlegur hagnaður af rekstri Akureyrarbæjar
Myndarlegur hagnaður var rekstri Akureyrarbæjar en þetta kemur fram í tilkynningu sem Akureyrarbær sendi inn til Kauphallar Ísland.
Rekstur samstæðunnar gekk vel og var mun betri en gert hafði verið ráð fyrir. Minnkandi verðbólga, hófleg hækkun lífeyrisskuldbindinga og nokkru hærri tekjur, höfðu jákvæð áhrif. Niðurstaðan er jákvæð um rúma tvo milljarða króna en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir afgangi upp á tæplega hálfan milljarð. Sjóðstreymið var betra en árið áður og veltufé sem hlutfall af tekjum er gott, eða 15,13%.
Samstæða Akureyrarbæjar, þ.e. Aðalsjóður, Fasteignir Akureyrarbæjar, Eignasjóður gatna og Umhverfismiðstöð ásamt fyrirtækjum í eigu bæjarins, s.s. Félagslegum íbúðum, Strætisvögnum Akureyrar, Hlíðarfjalli, Hafnasamlagi Norðurlands og Norðurorku, var rekin með 2.218 millj. kr. afgangi. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar gekk því mun betur en áætlun gerði ráð fyrir því í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir 436 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt var jákvæð um 3.987 millj. kr. en áætlun hafði gert ráð fyrir 2.853 millj. kr. rekstrarafgangi. Meginskýringar á bættri afkomu eru áhrif lækkandi verðbólgu á árinu, hófleg hækkun lífeyrisskuldbindinga ásamt nokkurri hækkun tekna frá Jöfnunarsjóði og þjónustutekna, einkum hjá hafnasamlagi og veitum.
Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 5.736 millj. kr. sem var 766 millj. kr. hærra en áætlað var. Sambærileg fjárhæð árið áður var 5.281 millj. kr. Handbært fé frá rekstri nam 5.588 millj. kr. Fjárfestingahreyfingar námu samtals nettó 5.043 millj. kr. en fjármögnunarhreyfingar námu samtals nettó -160 millj. kr. Afborgun langtímalána nam 1.576 millj. kr. Ný langtímalán voru tekin fyrir 800 millj. kr. hjá Norðurorku. Hækkun á handbæru fé á árinu nam 385 millj. kr. og var handbært fé samstæðunnar í árslok 2.951 millj. kr. Veltufé frá rekstri árið 2024 í hlutfalli við tekjur nam 15,13% í samstæðunni og 9,54% í A-hluta. Árið áður voru hlutföllin 15,35 í samstæðunni og 9,75% í A-hluta.
Heildarlaunagreiðslur með launatengdum gjöldum en án hækkunar lífeyrisskuldbindinga hjá samstæðunni voru 19.710 millj. kr. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.530 sem er fjölgun um 46 stöðugildi frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld ásamt lífeyrisskuldbindingum samstæðunnar í hlutfalli við rekstrartekjur hennar voru 52,9%. Annar rekstrarkostnaður var 30,8% af rekstrartekjum. Skatttekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga voru 1.238 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur voru samtals 1.891 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2023 voru skatttekjurnar 1.138 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.737 þús. kr. á hvern íbúa.
Niðurstaða rekstrar A-hluta var jákvæð um 834 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 632 millj. kr.
Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins í árslok 2024 bókfærðar á 72.304 millj. kr. en þar af voru veltufjármunir 7.537 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi 41.770 millj. kr. en þar af voru skammtímaskuldir 6.845 millj. kr.
Fjárhagur Akureyrarbæjar er mjög traustur og nam skuldaviðmið samstæðunnar í árslok 75% samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga en var 80% árið áður. Skuldaviðmið í A-hluta var 54% í árslok en var 56% árið áður.
Veltufjárhlutfallið var 1,10 í árslok 2024 en var 1,17 árið áður. Bókfært eigið fé nam 30.534 millj. kr. í árslok en var 27.023 millj. kr. í árslok árið áður. Eiginfjárhlutfall var 42% af heildarfjármagni á móti 40% árið áður.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 15. apríl og 6. maí nk.
Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt lögum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða að meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.