Marel eignast 100 prósent hlut í Curio

Árni Sigurðsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga hjá Marel, Elliði …
Árni Sigurðsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga hjá Marel, Elliði Hreinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Curio og Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fiskiðnaðar Marel. Mynd fengin af vef Curio.

Marel hefur nú keypt samtals 100% hlut í Curio, framleiðanda vinnslulausna fyrir hvítfisk. Frá því að Marel keypti 40% hlut í Curio í október 2019 og 10% til viðbótar í janúar 2021, hafa fyrirtækin unnið náið saman og deilt þekkingu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Curio sem hefur rekið starfsstöð á Húsavík undan farin ár.

„Fyrirtækin hafa unnið sameiginlega að vöruþróun nýrra og spennandi hátæknilausna og byggt á víðtæku sölu- og þjónustuneti og stafrænum lausnum Marel til þess að kanna nýja markaði og selja heildarlausnir um allan heim. Eftir farsælt samstarf í tvö ár hefur Marel samþykkt að kaupa eftirstandandi 50% hlut í Curio,“ segir í tilkynningunni. 

Heildarlausnir í fiskvinnslu 

Fram kemur að kaupin samræmist markmiðum Marel um að bjóða upp á heildarlausnir fyrir matvælaframleiðendur í leit að hátæknilausnum, hugbúnaði og þjónustu. „Kaupin á Curio, Völku og 40% hlut í Stranda Prolog færa Marel nær því að bjóða upp á heildarlausnir fyrir fiskvinnslu á heimsvísu og hafa jákvæð áhrif á framlegð fiskiðnaðar. Valka og Curio munu halda áfram að vinna náið með Marel og munu með tíma verða samþættuð rekstri Marel.“ 

„Við erum tilbúin að taka næsta skref í okkar vegferð með Curio, eftir afar farsælt samstarf síðustu tvö ár. Við höfum nú þegar náð frábærum árangri, þar sem okkar alþjóðlega sölu- og þjónustunet hefur gert Curio kleift að selja búnað inn á nýja markaði t.d. á Spáni og á Ítalíu. Einnig hefur sameinað vöruframboð á heildarlínum, hugbúnaði og þjónustu gert okkur kleift að ná nýjum viðskiptasamningum í Bandaríkjunum og í Evrópu,“ segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fiskiðnaðar Marel og bætir við að fyrirtækið horfi björtum augum til framtíðar.  

„Samstarf Curio og Marel undanfarin tvö ár hefur gengið vonum framar og hafa bæði félögin notið góðs af samvinnunni. Í ljósi þess hve mikill vöxtur hefur verið í sameiginlegum lausnum og hve vel samstarfið hefur gengið, tel ég að nú sé rétti tíminn til að sameina félögin. 

Ég er spenntur fyrir komandi sameiningu, sem mun skapa ennþá sterkari og heildstæðari vörulínu, hraða nýsköpun verkefna enn meira og viðskiptavinir munu njóta góðs af sterku framleiðslu, sölu- og þjónustuneti sameinaðs félags,“ segir Elliði Hreinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Curio.

Curio var stofnað árið 2008 og eru starfsmenn fyrirtækisins um 40 talsins.

Nýjast