27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Málþing um listnám á háskólastigi á Akureyri
Á morgun miðvikudag kl. 14 verður haldið í Listasafninu á Akureyri opið málþing um möguleika á að koma á fót listnámi á háskólastigi á Akureyri.
Ávörp flytja Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands og Anna Richards, gjörningalistakona. Að loknum framsögum kynnir Arnar Jóhannesson frá RHA fýsileikakönnun sem gerð var á hug framhaldsskólanema á landinu til að stunda listnám á háskólastigi á Akureyri. Loks segir Vilhjálmur Bragason nokkur vel valin orð um inntak málþingsins.
Eftir stutt kaffihlé verður flutt á skjá ávarp úr fjarska frá listamanninum Bergþóri Morthens og að því búnu verða pallborðsumræður með þáttöku framsögumanna og að auki Örnu Valsdóttur, kennara og listamanns, og Benedikts Barðasonar, aðstoðarskólastjóra VMA.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, slítur málþinginu með nokkrum orðum og að því búnu verður boðið upp á léttar veitingar.
Fundarstjóri verður Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri.