Mætti með heimatilbúið skotvopn í skólann
Nemandi á unglingastigi í Lundarskóla á Akureyri mætti með heimatilbúið skotvopn í skólann fyrir helgi og sýndi af sér ógnandi hegðun gagnvart kennara.
Í tilkynningu frá skólastjóra Lundarskóla Maríönnu Ragnarsdóttur til foreldra segir að öllu jafna sé um ljúfan einstakling að ræða en í þessu tilviki hafi starfsfólk haft áhyggjur af hegðun hans og kallað til lögreglu sem tók að sér málið ásamt barnavernd. Einstaklingurinn sem um ræðir er ekki í skólanum þessa stundina og málið er komið í viðeigandi ferli. Málið er litið alvarlegum augum og skólayfirvöld munu ekki tjá sig opinberlega.
Það var www. kaffid.is sem fyrst greindi frá þessu í morgun