Logi Már Einarsson leiðir lista Samfylkingar í Norðaustukjördæmi

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 var samþykktur á fundi kjördæmisráðs flokksins í morgun.

Logi Einarsson, alþingismaður og formaður þingflokks Samfylkingarinnar, leiðir listann í Norðausturkjördæmi. Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, og fjórða sætið skipar Sindri Kristjánsson lögfræðingur.

Í viðtalið við við heimasíðu Samfylkingarinnar segir Logi ,, „Við í Samfylkingu höldum full sjálfstrausts í kosningabaráttuna. Við erum tilbúin til þjónustu, fáum við til þess traust í kosningunum, eftir markvissa vinnu síðustu tvö árin undir styrkri forystu Kristrúnar Frostadóttur formanns.“

Framboðslistinn í heild er svona:

1. Logi Einarsson, alþingismaður
2. Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari VA
3. Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur við Rannsóknarmiðstöð HA
4. Sindri Kristjánsson, lögfræðingur
5. Stefán Þór Eysteinsson, fagstjóri hjá Matís í Neskaupstað
6. Kristín Helga Schiöth, framkvæmdastjóri
7. Ásdís Helga Jóhannsdóttir, sérfræðingur hjá Afli
8. Jóhannes Óli Sveinsson, stuðningsfulltrúi
9. Eva María Ingvadóttir, aðjúnkt við HA
10. Benóný Valur Jakobsson, verslunarmaður
11. Valborg Ösp Á. Warén, verkefnastjóri
12. Nói Björnsson, formaður íþróttafélagsins Þórs á Akureyri
13. Elsa María Guðmundsdóttir, grunnskólakennari
14. Birkir Snær Guðjónsson, hafnarvörður
15. Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri
16. Reynir Ingi Reinhardsson, lögfræðingur
17. Áslaug Inga Barðadóttir, framkvæmdastjóri
18. Árni Gunnarsson, bóndi í Sveinungsvík
19. Svanfríður Jónasdóttir, fv. bæjarstjóri og alþingismaður
20. Ólafur Ármannsson, framkvæmdastjóri

Nýjast