Lifandi tónlistarleiðsögn á Listasafninu á Akureyri
Boðið verður upp á lifandi tónlistarleiðsögn fyrir börn og fullorðna um sýningar Listasafnsins á Akureyri á laugardag nk. kl. 11-12.
Fjallað verður um valin verk og mun tónlistarfólkið Jónína Björt Gunnarsdóttir og Ívar Helgason syngja lög sem tengjast þeim listaverkum á léttan og skemmtilegan hátt. Gert er ráð fyrir að leiðsögnin taki um það bil 40 mínútur og verður þátttakendum boðinn glaðningur í lok leiðsagnar.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar. Fleiri spennandi viðburði má finna á barnamenning.is.