Kveðja Samherja eftir samtals 119 ár

Langt og farsælt samstarf. Frá vinstri: Frosti L. Meldal, Teresita Perez og Reynir Gísli Hjaltason /…
Langt og farsælt samstarf. Frá vinstri: Frosti L. Meldal, Teresita Perez og Reynir Gísli Hjaltason / myndir samherji.is.

Þrír starfsmenn sem unnið hafa hjá Samherja eða tengdum félögum í samtals 119 ár láta af störfum um áramótin.

Þetta eru Reynir Gísli Hjaltason sem starfað hefur hjá Samherja eða tengdum félögum í 50 ár, Frosti L. Meldal sem hefur starfað hjá Samherja og Útgerðarfélagi Akureyringa í 49 ár og Teresita Perez lætur af störfum eftir 20 ár hjá Samherja og Útgerðarfélagi Akureyringa.

Í tilefni ‏þessara tímamóta var efnt til kaffisamsætis þeim til heiðurs í matsal Útgerðarfélags Akureyringa.

Lítil starfsmannavelta, ánægja í starfi

 Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri Samherja og Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu þökkuðu þeim fyrir vel unnin störf og óskuðu þeim jafnframt velfarnaðar í nýjum hlutverkum.

„Góðu heilli er starfsmannaveltan hjá okkur lítil, sem undirstrikar með skýrum hætti að þetta er góður vinnustaður og af því getum við verið stolt,“ sagði Gestur Geirsson í ávarpi í kaffisamsætinu.

Þakkir frá Samherja

Samherji þakkar Reyni Gísla Hjaltasyni, Frosta L. Meldal og Teresitu Perez fyrir frábært samstarf og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Heimasíða Samherja sagði fyrst frá

 

Hanna Dóra Hermannsdóttir og Frosti L. Meldal kveðjast eftir farsælt samstarf

 

Reynir Gísli Hjaltason og Kristján Vilhelmsson í kveðjuhófinu

 

Kveðjustund: Angeline Mae Orozco, Teresita Perez, Jennifer Perez Seno, Jingly Catalan Llanos

Borðin hreinlega svignuðu undan kræsingunum

Nýjast