Kvæðamessa í Akureyrarkirkju

Kvæðamessa í Akureyrarkirkju n.k sunnudag.
Kvæðamessa í Akureyrarkirkju n.k sunnudag.

Glerárkirkja og Akureyrarkirkja standa saman að fjölbreyttum sumarmessum í Akureyrarkirkju kl. 11 á sunnudögum. Sunnudaginn 18. ágúst verður bryddað upp á þeirri nýung að halda Kvæðamessu með Kvæðamannafélaginu Gefjuni.

Mun þetta vera í fyrsta skipti sem slík stund er haldin, þar sem íslensk kvæði með trúarlegum tilvísunum eru kveðin á milli hefðbundinna liða guðsþjónustunnar. Vísur eftir Steingrím Thorsteinson, Jón Magnússon og Stefán frá Hvítadal munu hljóma í fagurri hvelfingu Akureyrarkirkju, auk þjóðvísna sem við þekkjum öll.

Ein vísa Steingríms er svona:

Tölum við um tryggð og ást,

tíma löngu farna, unun sanna,

er aldrei brást, eilífa von guðs barna.

Nú eru liðin 95 ár frá stofnun Kvæðamannafélagsins Iðunnar í Reykjavík, þann 15. september árið 1929. Kvæðamannafélagið Gefjun á Akureyri er nokkuð yngra, stofnað árið 2025 og fagnar því 20 ára afmæli sínu á næsta ári. Sr. María Guðrúnar. Ágústsdóttir leiðir guðsþjónustuna ásamt félögum úr Kvæðamannafélaginu Gefjuni.

Nýjast