Kona stórslösuð eftir árás Rottweiler hunds Axlarbrotin, sinar og vöðvar í sundur

Hundurinn sem réðst að konunni í Naustahverfi var af gerðinni Rottweiler. Þessi hundur tengist árási…
Hundurinn sem réðst að konunni í Naustahverfi var af gerðinni Rottweiler. Þessi hundur tengist árásinni ekki neitt. Mynd fengin að láni á netinu.

„Þetta er eitt það skelfilegast sem ég hef lent í,“ segir kona sem varð fyrir árás hunds í Naustahverfi nýverið. Hundurinn er af tegundinni Rottweiler. Hundurinn var í taumi þegar hann réðst að konunni fyrirvaralaust og án nokkurs tilefnis.

Konan var á gangi eftir Kjarnagötu og beygði niður í Vilhelmínugötu þegar hún sá hundinn sem var þar að gera þarfir sínar. „Ég man að ég hugsaði um hvort sá sem var með hundinn myndi hirða upp eftir hann,“ rifjar hún upp. Engin orðaskipti urðu á milli hennar og unga mannsins sem var með hundinn og hún hélt för sinni grunlaus áfram.

„Þá gerist það bara mjög skyndilega að hundurinn ræðst að mér, bítur mig í handlegg, um olnboga og hangir þar  að mér fannst mjög lengi. Hann er það kraftmikill og sterkur að hann rífur mig niður í götuna og heldur mér alveg fastri þannig að ég gat ekkert gert.“ Í þessum átökum axlarbrotnaði hún ásamt því að fá á sig ljóta áverka á handlegg vegna bitsins. Meðal annars náði hundurinn að bíta í sundur vöðva og sinar í handlegg.

Umfangsmikil aðgerð

Sá sem var með hundinn réð engan vegin við hann og hann hlýddi ekki fyrirmælum um að sleppa konunni. Hringt var á Neyðarlínu og sjúkrabíll sendur á vettvang sem flutti konuna á Sjúkrahúsið á Akureyri. Þar var gert að sárum hennar og kallaðir út auka læknar til að takast á við bitsárin í handleggnum sem voru umfangsmikil. Konan segir ljóst að hún muni verða frá vinnu um nokkurra mánaða skeið. „Það er ótrúlegt að upplifa að ánægjulegur heilsubótargöngutúr endi með þessum hætti.“ Konan segir að nokkur fjöldi fólks í hverfinu hafi haft samband og lýsi fólk yfir ótta við að fara út að ganga.

Lögreglan auglýsir eftir vitnum

Lögreglan er með málið til skoðunar  og  auglysir eftir hugsanlegum vitnum á Facebooksíðu embættisins í dag.  Þar segir m.a. ,,Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.  MAST og Akureyrarbæ hefur verið tilkynnt um málið en þær stofnanir fara með málefni hundsins.

Upplýsingar eru um að mögulega hafi vitni verið að árásinni. Viðkomandi eru beðin um að gefa sig fram við lögreglu eða hafa samband í síma 444-2800 á opnunartíma".

Nýjast